Hæhæ allir!
Vonandi skemmtuð þið ykkur konunglega á ballinu í gærkvöldi

Ég ætla að byrja á að minna ykkur á að MÆTA FYRIR KL.18 í dag því við förum kl.18 ekki byrjum að mæta kl.18

Svo verðið öll að muna að koma með 1500kr fyrir matnum í peningum.
En á meðan við djömmuðum í gær sendi Gunnar póst með nákvæmri dagskrá sem ég ákvað að setja hér inn því sumir virðast hafa ekki hafa séð hann...
Föstudagur:
Brottför frá Kvennó (niðri við Tjarnargötu) klukkan 18:00. Vinsamlegast mætið dálítið fyrir klukkan sex.
Áætlaður komutími á Lýsuhól er 20:00. Þá koma allir sér fyrir, svo borðum við pylsur og höldum smá kvöldvöku - hópleikir og fjör.
Snemma að sofa.
Laugardagur:
9:00-12:30 Æfing! Vakna snemma og borða morgunmat (sem þið komið með sjálf). Við æfum öll saman, skiptum svo í raddæfingar, hittumst svo öll aftur.
Pása og sameiginlegur hádegismatur (Súpa)
14:00-17:30 Æfing (sameiginleg, raddæfing, sameiginleg)
Pása og sameiginlegur kvöldmatur (súrsætar kjötbollur)
?-? Stutt æfing - rennum í gegnum nokkur lög og festum árangur daxins
Kvöldvaka - hópleikir, spil, skemmtiatriði frá öllum röddum (og þeim einstaklingum sem vilja tjá sig :-) Gítarar og söngbækur góð hugmynd.
Sunnudagur:
10:00-12:30 Æfing
Matur (afgangar og nesti) og tiltekt
15:00 Brottför
Áætlaður komutími 17:00
Takið með ykkur:
Nóturnar!
Svefnpoka (lak, kodda...)
Nesti, drykkjarföng (óáfeng), snakk...
Tannbursta, hárbursta, vírbursta... ;-)
Sundföt
Gítara, söngbækur, spil, skemmtiatriði...
Góða skapið
Munið: Ferðin er áfengislaus, þeir sem ekki þola það verða sendir heim samstundis á eigin kostnað.
Sjáumst svo í banastuði á eftir

Anna Lucie